Sex starfsmenn Ferils hafa nú lokið tæknifræðinámi frá Háskólanum í Reykjavík,af bæði véla- og orku- og tæknifræðibraut. Við óskaum útskriftarnemunum okkar innilega til hamingju með áfangann.
Þau eru:
Alexander Gísli Hlynsson, lagnasvið
Davíð Hafsteinsson, burðarþolssvið
Finnur Helgason, framkvæmdasvið
Kristófer Atli Brynjólfsson, burðarþolssvið
Melkorka María Guðmundsdóttir, framkvæmdasvið
Sara Arndís Thorarensen, lagnasvið
Þau hafa nú þegar komið að fjölbreyttum verkefnum hjá Ferli samhliða námi sínu og öðlast mikilvæga reynslu í raunverkefnum innan mismunandi sviða fyrirtækisins. Námið mun nýtast þeim vel í áframhaldanndi störfum á Ferli þar sem reynir á faglega þekkingu, lausnamiðaða hugsun og góða samvinnu í krefjandi verkefnum.
Við hjá Ferli leggjum ríka áherslu á að styðja við menntun, þróun og vöxt starfsfólks okkar og erum afar ánægð með að hafa þetta öfluga og metnaðarfulla unga fólk í okkar teymi. Þau styrkja okkur enn frekar og munu án efa eiga stóran þátt í áframhaldandi uppbyggingu og þróun fyrirtækisins á komandi árum.
Við óskum þeim öllum innilega til hamingju með þennan stóra áfanga og hlökkum til áframhaldandi samstarfs.

