Ferill hlaut nýlega viðurkenningu sem eitt af fyrirmyndarfyrirtækjum í rekstri árið 2025 samkvæmt úttekt Viðskiptablaðsins og Keldunnar en Ferill hefur verið á listanum síðan 2018. Viðurkenningin staðfestir stöðugan og traustan rekstur fyrirtækisins til lengri tíma og setur Feril í hóp þeirra fáu fyrirtækja sem uppfylla strangar kröfur um fjárhagslegan styrk og rekstrarlegt jafnvægi. Aðeins lítið hlutfall íslenskra fyrirtækja nær þessum viðmiðum.
Þar að auki var Ferill metið framúrskarandi fyrirtæki af Creditinfo fyrir árið 2025 en Ferill hefur nú verið á þeim lista samfellt í yfir meira en áratatug. Mat Creditinfo byggir á lykilþáttum í rekstri, þar á meðal afkomu, eiginfjárstöðu, lausafjárhlutföllum og stöðugleika í starfsemi.
Ferill þakkar starfsfólki sérstaklega fyrir metnaðarfullt og faglegt starf sem liggur að baki þessum árangri. Jafnframt þökkum við viðskiptavinum og samstarfsaðilum fyrir gott samstarf og traust. Með þennan sterka grunn að leiðarljósi horfir Ferill fram á veginn og til komandi verkefna.


