Að Korputúni 1 stendur yfir bygging á 11.000 m² lager-, verslunar- og skrifstofuhúsnæði fyrir Lagerinn ehf. (JYSK). Hönnuðir eru DAP arkitektar og Ferill en Ferill sér einnig um verkefnastjórnun.
Grafa og Grjót ehf. hófu jarðvinnuframkvæmdir 20. mars síðastliðin og luku uppúrtekt, fyllingu og þjöppun á um 70.000 m³ um miðjan júlí 2025.
Samið var við Borgarafl ehf. um uppsteypu sem og afhendingu og reisingu á stálgrindarhúsi. Borgarafl hóf framkvæmdir á verkstað í byrjun ágúst 2025 en fyrsta steypa var 15. ágúst og hafa framkvæmdir gengið skv. áætlun hingað til en nú, 19. desember, er að mestu búið að reisa stálgrindina yfir lagerhlutanum en áætlað er að hann verði fokheldur í lok febrúar 2026. Þá verður hægt að hefja vinnu við að steypa og slípa botnplötur í lagerhlutanum ásamt því að hefja vinnu við pípu-, raf- og loftræsilagnir innanhúss.
Búið er að semja við Landslagnir ehf. um lagnavinnu en vinna við grunnlagnir er komin vel í gang.
Raflagnir og loftræsing verða boðin út nú fyrir jól 2025.
Áætlað er að lagerhluti hússins verði tilbúinn í ágúst 2026 en verslunarhlutinn í mars/apríl 2027.
Jarðvinna 12. maí 2025

Fyrsta steypa 15. ágúst 2025

25. sept 2025

13. október 2025

13. nóvember 2025

3. desember 2025

15. desember, 2025

