Brasa Resturant í Turninum

Nýr fyrsta flokks veitinga- og viðburðastaður opnaði dyr sínar í hjarta Kópavogs nú á dögunum. BRASA Restaurant opnaði í Turninum, Smáratorgi 3, við mikinn fögnuð allra sem komu að verkinu, starfsfólks fyrirtækja í húsinu og annara gesta.

Eldhús BRASA býður upp á hádegishlaðborð, hádegis- og kvöldverðaseðla ásamt hinum ýmsu árstíðarbundnu hlaðborðum og tækifærisuppákomum. Staðnum er hægt að skipta upp í þrjá veislusali sem hægt er að bóka fyrir hvers konar tilefni, veislur, afmæli eða fundi í tveimur fullútbúnum fundarherbergjum.

Á staðnum er rúmgóð setustofa sem tekur á móti gestum og gangandi við aðalinngang á 2. hæð. Þá má nefna vínherbergið og barinn sem glóir með baklýstum veggflísum og fljótandi veitingum af bestu gerð. BRASA Deli er þar við aðalinngang 2. hæðar þar sem úrvals kjöt og bakkelsi er í hillum ásamt kaffi og öðru góðgæti.

Aðkoma Ferils fól í sér lagna- og loftræsihönnun, raflagnahönnun, burðarþolsráðgjöf, verkefnastýringu og eftirlit. Arkitektar voru TP Bennett og HAFSTUDIO.

Við óskum Eik og Lux Veitingum innilega til hamingju með veitingastaðinn og þökkum þeim gott samstarf sem og öllum sem lögðu hönd á plóg.

Hér má lesa meira um málið.

Teymið á bakvið veitingastaðinn:

Mynd af mbl.is: Guðbjartur Magnússon hjá Eik fasteignafélagi, Hallur Árnason hjá Atlas verktökum, Finnur Ingi Hermannsson hjá Eik fasteignafélagi, Júlía Brekkan hjá Eik fasteignafélagi, Jóhann T. Egilsson og Agnar Ási Ægisson Levy sem starfa báðir hjá Ferli verkfræðistofu.