Ferill hefur á ný hlotið viðurkenningar fyrir að vera meðal fyrirmyndarfyrirtækja í rekstri árið 2026 samkvæmt úttekt Viðskiptablaðsins og Keldunnar og er jafnframt á lista Creditinfo yfir framúrskarandi fyrirtæki ársins.
Ferill hefur hlotið viðurkenningu Creditinfo árlega frá árinu 2014 og verið meðal fyrirmyndarfyrirtækja í rekstri samkvæmt Viðskiptablaðinu og Keldunni frá árinu 2018. Þessi samfelldi árangur endurspeglar stöðugleika í rekstri og traustan grunn að áframhaldandi uppbyggingu og þjónustu við viðskiptavini.
Að baki árangrinum stendur öflugur hópur starfsfólks sem leggur metnað og fagmennsku í verkefni sín á hverjum degi. Við þökkum starfsfólki okkar fyrir framlagið og viðskiptavinum og samstarfsaðilum fyrir traustið og ánægjulegt samstarf.


