Category Archives: Fréttir

Ferill framúrskarandi og til fyrirmyndar árið 2026

Ferill hefur á ný hlotið viðurkenningar fyrir að vera meðal fyrirmyndarfyrirtækja í rekstri árið 2026 samkvæmt úttekt Viðskiptablaðsins og Keldunnar og er jafnframt á lista Creditinfo yfir framúrskarandi fyrirtæki ársins. Ferill hefur hlotið viðurkenningu Creditinfo árlega frá árinu 2014 og verið meðal fyrirmyndarfyrirtækja í rekstri samkvæmt Viðskiptablaðinu og Keldunni frá árinu 2018. Þessi samfelldi árangur…

Starfsfólk Ferils útskrifast

Sex starfsmenn Ferils hafa nú lokið tæknifræðinámi frá Háskólanum í Reykjavík, af bæði véla- og orku- og tæknifræðibraut. Þau eru: Alexander Gísli Hlynsson, lagnasvið Davíð Hafsteinsson, burðarþolssvið Finnur Helgason, framkvæmdasvið Kristófer Atli Brynjólfsson, burðarþolssvið Melkorka María Guðmundsdóttir, framkvæmdasvið Sara Arndís Thorarensen, lagnasvið Þau hafa nú þegar komið að fjölbreyttum verkefnum hjá Ferli samhliða námi sínu…

Korputún 1 fyrir Lagerinn

Að Korputúni 1 stendur yfir bygging á 11.000 m² lager-, verslunar- og skrifstofuhúsnæði fyrir Lagerinn ehf. (JYSK). Hönnuðir eru DAP arkitektar og Ferill en Ferill sér einnig um verkefnastjórnun. Grafa og Grjót ehf. hófu jarðvinnuframkvæmdir 20. mars síðastliðin og luku uppúrtekt, fyllingu og þjöppun á um 70.000 m³ um miðjan júlí 2025. Samið var við…

Ferill framúrskarandi og til fyrirmyndar árið 2025

Ferill hlaut nýlega viðurkenningu sem eitt af fyrirmyndarfyrirtækjum í rekstri árið 2025 samkvæmt úttekt Viðskiptablaðsins og Keldunnar en Ferill hefur verið á listanum síðan 2018. Viðurkenningin staðfestir stöðugan og traustan rekstur fyrirtækisins til lengri tíma og setur Feril í hóp þeirra fáu fyrirtækja sem uppfylla strangar kröfur um fjárhagslegan styrk og rekstrarlegt jafnvægi. Aðeins lítið…

Brasa Resturant í Turninum

Nýr fyrsta flokks veitinga- og viðburðastaður opnaði dyr sínar í hjarta Kópavogs nú á dögunum. BRASA Restaurant opnaði í Turninum, Smáratorgi 3, við mikinn fögnuð allra sem komu að verkinu, starfsfólks fyrirtækja í húsinu og annara gesta. Eldhús BRASA býður upp á hádegishlaðborð, hádegis- og kvöldverðaseðla ásamt hinum ýmsu árstíðarbundnu hlaðborðum og tækifærisuppákomum. Staðnum er…

Hjúkrunarheimili í Hveragerði

Á dögunum var tekin fyrsta skóflustunga að hjúkrunarheimili í Hveragerði. Um er að ræða framkvæmd á vegum Grundarheimilanna og mun byggingin hýsa 44 einakrými fyrir íbúa og tilheyrandi aðstöðu sem bætist við það húsnæði og starfsemi sem að Ás hefur nú þegar á staðnum. Ferill annast alla jarðvinnu-, burðarþols-, lagna-, loftræsi- og raflagnahönnun í verkinu. Gláma/Kím…

Áttræðir

Það er alltaf fagnaðarefni að eiga afmæli og vilja flestir að það gerist með reglulegu millibili í þeirra lífi þó svo að margir kjósi að fagna því ekki sérstaklega. Á dögunum gerðist það þó að okkar menn, Gunnar og Snæbjörn, áttu áttræðisafmæli með nokkurra daga millibili. Eins og mörgum er kunnugt eru Gunnar og Snæbjörn…

Ferill framúrskarandi og til fyrirmyndar árið 2024

Árið 2024 var ánægjulegt hjá Ferli þar sem fyrirtækið rataði í 9. sæti á lista Viðskiptablaðsins og Keldunnar yfir fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri. Ferill hefur verið á þessum lista frá 2018 og við erum stolt af því að vera meðal þeirra fyrirtækja sem ná þessum árangri sem aðeins 2,9% fyrirtækja landsins ná. Einnig var Ferill á…

Starfsnemar á Ferli

Við á Ferli höfum verið svo heppin að hafa hjá okkur á haustmánuðum ungt og efnilegt fólk frá Háskólanum í Reykjavík. Þau hafa lagt hönd á plóg á ýmsum sviðum stofunnar, sinnt margvíslegum verkefnum og tekið virkan þátt í félagslífinu. Í liðinni viku héldu þau svo opna kynningu á sínum störfum í haust ásamt samnemendum…

Ferill í Kerlingarfjöllum

Starfsfólk Ferils fór upp í Kerlingarfjöll fyrr í sumar og gerði sér glaðan dag þar sem gengið var um stórbrotið landslagið. Erfitt göngufæri dró ekkert úr upplifuninni sem fylgdi því að ganga um eitt fjölbreyttasta hverasvæði landsins og útsýnið yfir öræfasvæðið sveik engan. Að gönguferð lokinni lá leiðin í Highland Base böðin til að mýkja…