Fjallaböðin í Þjórsárdal verða að veruleika

03.11.2022 var fyrsta skóflustungan tekin að Fjallaböðunum í Þjórsárdal. Það voru þau Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Grímur Sæmundsen forstjóri Bláa Lónsins, Haraldur Þór Jónsson sveitarstjóri Skeiða- og Gnúpverjahrepps og Magnús Orri Marínarson Schram framkvæmdarstjóri Fjallabaðanna sem tóku saman skóflustunguna.

Hér er á ferð metnaðarfull uppbygging í Þjórsárdal sem áætlað er að verði komin í gagnið árið 2025.

Annars vegar er um að ræða Fjallaböðin; baðstað og 40 herbergja hótel, þar sem samspil náttúru og hönnunar á sér engan líkan en stór hluti byggingarinnar verður byggður ínni fjallið Rauðukamba. Hins vegar er um að ræða Gestastofu Þjórsárdals sem mun rísa í mynni Þjórsárdals. Þar verður reist 2000 fermetra þjónustubygging sem mun hýsa upplýsingamiðstöð ferðamanna, metnaðarfullt sýningarhald, og veitingaþjónustu ásamt fleiri gistimöguleikum, í smáhýsum og á tjaldstæði.

Umhverfis- og sjálfbærnisjónarmið eru höfð að leiðarljósi við alla uppbyggingu. Allar byggingar verða BREEAM sjálfbærnivottaðar. Þannig er stefnt að lægra kolefnisspori en venja er til, vistvænum lausnum við byggingu og endurvinnslu á byggingarefni. Stefnt verður að kolefnisjöfnuðum rekstri frá fyrsta degi. Þegar hefur félagið plantað 120.000 trjám í Þjórsárdal til að tryggja bindingu kolefnis stax við opnun.

Áætlaður kostnaður við uppbygginguna er á bilinu 6-8 milljarðar króna. Bakhjarlar verkefnisins eru Rauðukambar ehf en helsti eigandi þess eru Íslenskar heilsulindir ehf, dótturfélag Bláa Lónsins hf.

Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins hf.: Við erum mjög spennt fyrir metnaðarfullri uppbyggingu í Þjórsárdal en hún rímar mjög vel við áherslur okkar um einstaka hönnun, þjónustugæði, sjálfbærni í rekstri og umhverfisvitund. Með uppbyggingunni er gott aðgengi gesta að svæðinu tryggt á sama tíma og virðing fyrir einstakri náttúru og sögu er höfð að leiðarljósi. Gott samstarf okkar við nærsamfélag, stjórnvöld og viðeigandi stofnanir ber að þakka.

Haraldur Þór Jónsson, sveitastjóri Skeiða- og Gnúpverjahrepps: Þessi tímamót marka upphafið að mikilli uppbyggingu ferðaþjónustu í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Þjórsárdalurinn er einstök náttúruperla og hefur verið eitt best geymda leyndarmál í ferðaþjónustu á Suðurlandi. Með friðlýsingu Þjórsárdalsins árið 2020 var lagður grunnurinn að því að varðveita einstök náttúru- og menningarverðmæti Þjórsárdals. Þjórsárdalurinn með Fjallaböðin, Háafoss, Gjánna, Stöng, Hjálparfoss og fleiri staði ásamt fjölmörgum gönguleiðum og einstakri sögu minja mun verða mikið aðdráttarafl í ferðaþjónustu á Íslandi

Ferill verkfræðistofa fer með Loftræsi-, lagna- og raflagnahönnun verksins.

Meira um málið má lesa á frétt Vísis

Skildu eftir svar