Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri

Nýlega birti Viðskiptablaðið lista yfir þau fyrirtæki sem standa upp úr á Íslandi og eru þar með öðrum til fyrirmyndar í rekstri. Til þess að komast á listann þurfa fyrirtæki að uppfylla ströng skilyrði; fyrirtækin þurfa að hafa skilað jákvæðri afkomu á rekstrarárinu 2017, tekjur þurfa að hafa verið umfram 30 milljónir króna, eignir yfir 80 milljónum og eiginfjárhlutfallið þarf að hafa verið yfir 20%. Auk þessa er tekið tillit til annarra þátta sem metnir eru af Viðskiptablaðinu og Keldunni. Að þessu sinni komast ríflega 1.100 fyrirtæki á listann eða um 3% fyrirtækja landsins.

Ferill ehf verkfræðistofa er í hópi meðalstórra fyrirtækja og við erum afar stolt af því að vera númer 11 á listanum.

Grein viðskiptablaðsins

Rafræn útgáfa viðskiptablaðsins sept. 2018

Skildu eftir svar